Viðræður við Barcelona hafnar

Sergio Agüero hefur verið afar sigursæll með Manchester City og …
Sergio Agüero hefur verið afar sigursæll með Manchester City og lyfti m.a. enska deildabikarnum í síðasta mánuði. AFP

Barcelona hefur hafið viðræður við argentínska framherjann Sergio Agüero um að ganga til liðs við félagið frá Manchester City í sumar.

Sky Sports skýrir frá þessu en Agüero yfirgefur City í sumar þegar samningur hans rennur út, eftir að hafa spilað með liðinu í tíu ár og skorað 258 mörk í 387 mótsleikjum fyrir félagið. Þar af hefur hann skorað 182 mörk í 273 leikjum í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert