Ed Sheeran fer sömu leið og Kaleo

Ed Sheeran í íslensku landsliðstreyjunni ásamt Sir Elton John.
Ed Sheeran í íslensku landsliðstreyjunni ásamt Sir Elton John. Mynd/E! Online @Elton John AIDS Foundation

Enska knattspyrnufélagið Ipswich Town sem Hermann Hreiðarsson lék með snemma á öldinni tilkynnti í morgun nýjan styrktaraðila sem auglýst gæti framan á búningum liðsins. 

Styrktaraðilinn er tónlistarmaðurinn og Íslandsvinurinn Ed Sheeran sem býr í Suffolk en þar er Ipswich stærsti byggðakjarninn. Er hann knattspyrnuáhugamaður og stuðningsmaður Ipswich Town. Hefur Sheeran oftar en einu sinni sést opinberlega í íslensku landsliðstreyjunni. 

Ef til vill eru tímarnir að breytast í íþróttunum en á dögunum tilkynnti Afturelding að hljómsveitin Kaleo væri styrktaraðili félagsins og merki hljómsveitarinnar yrði framan á búningum liðsins í knattspyrnunni.

Kaleo á Grammy-verðlaunahátíðinni.
Kaleo á Grammy-verðlaunahátíðinni. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert