Rakel Hönnudóttir var hetja Reading er liðið tryggði sér sæti í átta liða úrslitum enska bikarsins í fótbolta í dag. Rakel skoraði sigurmark Reading á 82. mínútu í 2:1-sigri á Birmingham, aðeins mínútu eftir að hún kom inn á sem varamaður.
Rakel hefur byrjað afar vel hjá Reading og er hún komin með þrjú mörk í þremur leikjum með liðinu, þrátt fyrir að byrja á varamannabekknum í þeim öllum.
„Rakel lætur strax vita af sér með glæsilegu skoti og Reading er komið yfir!“ sagði Twitter-síða Reading um markið.