Christan Eriksen orðaður við PSG

Christian Eriksen miðjumaður Tottenham er orðaður við PSG í breskum …
Christian Eriksen miðjumaður Tottenham er orðaður við PSG í breskum fjölmiðlum. AFP

Samkvæmt Express er PSG að undirbúa 100 miljóna punda tilboð í danska knattspyrnumanninn Christian Eriksen. 

Eriksen hefur ekki skrifað undir nýjan samning við Tottenham og því gæti Tottenham ákveðið að selja hann áður en samningur hans rennur út. Tottenham hefur þurft að halda að sér höndunum á félagsskiptamarkaðnum vegna uppbyggingar nýs leikvangs og því hefur félagið ekki getað styrkt sig fyrir tímabilið. Eriksen er sagður vilja sjá hvort að félagið muni styrkja sig áður en hann krotar undir nýjan samning.

PSG er sagt vera tilbúið að láta Angel Di Maria og Julian Draxler fara til þess að halda sér innan FFP-reglnanna en félagið er undir smásjá FIFA eftir kaupin á Neymar og Mbappe í fyrra. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert