Vill fá fimm nýja leikmenn

Manuel Pellegrini varð Englandsmeistari með Manchester City.
Manuel Pellegrini varð Englandsmeistari með Manchester City. AFP

Manuel Pellegrini, nýráðinn stjóri West Ham, vill fá fimm nýja leikmenn til félagsins. Pelligrini tók við af David Moyes sem endaði í 13. sæti með liðið á leiktíðinni sem var að líða.

Pellegrini, sem skrifaði undir þriggja ára samning í dag, vill spila sóknarbolta og enda ofar í töflunni. „West Ham er með mjög gott lið og góða leikmenn. Ég horfði á flesta leiki síðasta tímabils. Ef við bætum við fórum eða fimm nýjum leikmönnum verður liðið mjög sterkt,“ sagði Sílemaðurinn.

„Við viljum spila fótbolta sem gerir stuðningsmennina okkar glaða. Ég spila alltaf sóknarbolta og við getum náð góðum árangri á næstu leiktíð og endað ofar,“ bætti hann við.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert