Rochdale jafnaði í uppbótartíma

Harry Kane kom Tottenham í 2:1 á 88. mínútu en …
Harry Kane kom Tottenham í 2:1 á 88. mínútu en það dugði ekki til. AFP

Tottenham og C-deildarlið Rochdale skildu jöfn, 2:2, í ótrúlegum leik í 5. umferð enska bikarsins.

Væntanlega voru allir búnir að bóka sigur Tottenham er markahrókurinn Harry Kane kom liðinu í 2:1. á 88. mínútu úr vítaspyrnu en svo fór nú aldeilis ekki.

Steve Davies var hetja liðsins í uppbótartíma er hann jafnaði metin og tryggði liðinu annan leik sem fram fer á Wembley.

Ian Henderson kom Rochdale yfir á 45. mínútu á Spotland-vellinum fyrir framan 8.500 áhorfendur.

Lucas Moura opnaði hins vegar markareikning sinn fyrir liðið eftir komu sína frá Paris Saint Germain í janúarglugganum og jafnaði metin á 59. mínútu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert