Moyes gagnrýnir bestu leikmenn West Ham

David Moyes á hliðarlínunni í gær.
David Moyes á hliðarlínunni í gær. AFP

David Moyes, sem stýrði West Ham í fyrsta sinn í 2:0-tapi fyrir Watford í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær, gagnrýndi þá leikmenn liðsins sem eiga að vera hvað mikilvægastir.

„Sumir leikmenn sem hafa stórt orðspor á sér voru mér mikil vonbrigði. Ég hélt þeir myndu sýna eitthvað meira. Þeir þurfa að sýna mér af hverju þeir hafa gott orðspor á sér,“ sagði Moyes eftir leikinn.

„Ég var ekki ánægður með frammistöðuna og ég ætlast til þess að menn standi sig betur. Við reyndum að halda okkur inni í leiknum en stóðum okkur heilt yfir ekki nægilega vel,“ sagði sá skoski.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert