Búið að reka fimm stjóra

Frank de Boer var fyrstu stjórinn til að fjúka á …
Frank de Boer var fyrstu stjórinn til að fjúka á þessu tímabili. AFP

Tony Pulis varð fimmti knattspyrnustjórinn sem fær reisupassann í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á þessu tímabili en eins og fram kom í fréttum í morgun var Pulis rekinn frá WBA.

Á þessum tímapunkti í fyrra hafði aðeins einn stjóri verið rekinn en Swansea losaði sig við Francesco Guidolin.

Þessir hafa fengið að taka poka sinn á leiktíðinni:

Frank de Boer - Crystal Palace
Craig Shakespeare - Leicester
Ronald Koeman - Everton
Slaven Bilic - West Ham
Tony Pulis - WBA

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert