Luiz brotnaði á úlnlið

David Luiz.
David Luiz. AFP

David Luiz, miðvörður Englandsmeistara Chelsea, úlnliðsbrotnaði í leiknum gegn Arsenal á Stamford Bridge um síðustu helgi.

Luiz varð fyrir meiðslunum undir lok fyrri hálfleiks eftir viðskipti við Alexandre Lacazette, framherja Arsenal. Brasilíumaðurinn hélt þó leik áfram alveg þar til hann fékk að líta rauða spjaldið undir lok leiksins.

Luiz tekur út leikbann í næstu þremur leikjum Chelsea-liðsins vegna rauða spjaldsins og hann missir mögulega af fleiri leikjum vegna meiðslanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert