Hvað gerir Gylfi í kvöld?

Gylfi Þór Sigurðsson og Wayne Rooney hefur gengið illa í …
Gylfi Þór Sigurðsson og Wayne Rooney hefur gengið illa í september. AFP

Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Everton freista þess að komast aftur á sigurbraut í kvöld þegar liðið tekur á móti Sunderland í enska deildabikarnum.

Everton hefur tapað síðustu fjórum leikjum sínum í öllum keppnum, en síðasta markið sem liðið skoraði var einmitt draumamark Gylfa nánast frá miðju gegn Hajduk Split í Evrópudeildinni. Það kom 24. ágúst og er því nærri mánuður frá síðasta marki liðsins.

Sunderland er þó ekki búið að standa sig vel eftir að hafa fallið úr ensku úrvalsdeildinni í vor og er í 21. sæti ensku B-deildarinnar eftir átta leiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert