Forráðamenn Everton, liðs Gylfa Þórs Sigurðssonar, munu ekki halda fréttamannafund fyrir bikarleik við Sunderland sem fram fer á morgun, en jafnan er venja að knattspyrnustjórar sitji fyrir svörum í aðdraganda leikja.
Everton mætir Sunderland í enska deildabikarnum á morgun og hafa ákveðið að láta Ronald Koeman ekki svara spurningum blaðamanna fyrir leikinn. Hann hefur verið mikið í kastljósinu eftir slæma byrjun Everton á leiktíðinni og er jafnvel talinn valtur í sessi.
Koeman mun hins vegar halda fréttamannafund á fimmtudag í aðdraganda næsta leik liðsins í ensku úrvalsdeildinni við Bournemouth.