Welbeck úr leik næstu vikurnar

Danny Welbeck í baráttu við Cesar Azpilicueta á Stamford Bridge …
Danny Welbeck í baráttu við Cesar Azpilicueta á Stamford Bridge í gær. AFP

Danny Welbeck framherji Arsenal verður frá keppni næstu vikurnar vegna meiðsla sem hann varð fyrir í leiknum gegn Chelsea í gær.

Enski landsliðsmaðurinn haltraði af velli þegar um 20 mínútur voru til leiksloka. Welbeck varð fyrir meiðslum í nára og að því er enskir fjölmiðlar greina frá í kvöld er líklegt að framherjinn verði frá keppni næstu fjórar vikurnar,

Þetta er vond tíðindi fyrir Arsenal enda hafði Welbeck byrjað tímabilið vel og hefur skorað þrjú mörk fyrir Lundúnaliðið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert