Vilja gera nýjan samning við Jesus

Gabriel Jesus.
Gabriel Jesus. AFP

Manchester City hefur hafið viðræður við brasilíska framherjann Gabriel Jesus um að framlengingu á samningi hans við félagið.

Jesus, sem er 20 ára gamall, kom til Manchester City frá brasilíska liðinu Palmeiras í janúar á þessu ári fyrir 27 milljónir punda. Brassinn ungi hefur svo sannarlega gert það gott frá því hann kom til Manchester-liðsins en hann hefur skorað 12 mörk í þeim 15 leikjum sem hann hefur byrjað inni á í.

Núgildandi samningur Jesus við Manchester City gildir til ársins 2021 en forráðamenn City vilja tryggja þjónustu hans við félagið og eru reiðubúnir að gera nýjan og betri samning við leikmanninn. Jesus hefur skorað 6 mörk í öllum keppnum með City á þessu tímabili.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert