Þriðji markvörður Liverpool spilar á morgun

Jürgen Klopp knattspyrnustjóri Liverpool.
Jürgen Klopp knattspyrnustjóri Liverpool. AFP

Danny Ward þriðji markvörður Liverpool fær tækifæri á milli stanganna annað kvöld þegar Liverpool sækir Leicester City heim í ensku deildabikarkeppninni.

Jürgen Klopp knattspyrnustjóri Liverpool staðfesti þetta í dag en þeir Simon Mignolet og Loris Karius hafa barist um aðalmarkvarðarstöðuna hjá Liverpool á leiktíðinni.

Þá mun enski landsliðsmaðurinn Alex Oxlade-Chamberlain fá tækifæri í byrjunarliði Liverpool í fyrsta sinn frá því hann kom til félagsins frá Arsenal á dögunum.

Leicester og Liverpool eigast svo við í deildinni á laugardaginn og eins annað kvöld og fer sá leikur fram á heimavelli Leicester.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert