Enska B-deildarfélagið Wolves hefur fengið portúgalska miðjumanninn Diogo Jota frá Atlético Madrid á lánssamning sem gildir út leiktíðina. Jota skoraði níu mörk í 35 leikjum fyrir Porto á síðustu leiktíð þar sem hann var einnig á láni.
Jota er tvítugur og á hann fjögur ár eftir af samningi sínum við Atlético. Hann spilaði í Meistaradeild Evrópu með Porto á síðustu leiktíð, ásamt því að hann var í portúgalska U21 árs landsliðinu sem lék á EM fyrr í sumar.