Getur ekki beðið eftir að mæta United

Javier Hernández er orðinn leikmaður West Ham.
Javier Hernández er orðinn leikmaður West Ham. Ljósmynd/Heimasíða West Ham

Javier Hernández gekk í raðir West Ham frá Leverkusen í gærkvöldi og hann getur ekki beðið eftir að mæta Manchester United í fyrsta leik tímabilsins. Hernández lék yfir 150 leiki fyrir United á sínum tíma. 

„Ég verð örugglega spenntari en liðsfélagar mínir þegar við mætum United á Old Trafford í fyrstu umferð. Það verður gaman að heimsækja gamla heimavöllinn. Ég er mjög spenntur fyrir því að snúa aftur í bestu deild í heimi og við viljum berjast um Evrópusæti,“ sagði Hernández. 

Leikur Manchester United og West Ham verður sunnudaginn 13. ágúst næstkomandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert