Verður sá hæst launaði frá upphafi

Javier Hernandez.
Javier Hernandez. AFP

Mexíkóski framherjinn Javier Hernandez er væntanlegur til Lundúna í dag þar sem hann mun gangast undir læknisskoðun hjá West Ham áður en hann skrifar undir samning við félagið.

West Ham hefur náð samkomulagi við þýska liðið Bayer Leverkusen um félagaskiptin en Lundúnaliðið greiðir 13 milljónir punda fyrir Hernandez.

Hernandez eða „Chicharito“ eins og er jafnan kallaður verður hæst launaði leikmaður West Ham frá upphafi en talið er að hann fái 140 þúsund pund í vikulaun en sú upphæð jafngildir 19,2 milljónum íslenskra króna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert