Pedro illa meiddur í andliti (myndskeið)

Pedro er hér studdur af velli eftir samstuðið við Ospina.
Pedro er hér studdur af velli eftir samstuðið við Ospina. AFP

Spænski miðjumaðurinn Pedro leikmaður Englandsmeistara Chelsea braut nokkur bein í andlitinu í leiknum gegn Arsenal í Peking á laugardaginn.

Pedro lenti í harkalegu samstuði við David Opsina með fyrrgreindum afleiðingum. Hann var fluttur á sjúkrahús og segir Antoni


o Conte, stjóri Chelsea, að leikmaðurinn verði frá æfingum næstu tíu dagana.

Chelsea hafði betur í leiknum, 3:0, og mætir þýsku meisturunum í Bayern München í Singapúr á morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert