Juventus vill fá Can frá Liverpool

Emre Can.
Emre Can. AFP

Ítalíumeistarar Juventus eru að undirbúa tilboð í þýska landsliðsmanninn Emre Can, leikmann Liverpool, að því er ítalskir fjölmiðlar greina frá í dag.

Juventus hyggst bjóða Liverpool 31 milljón punda í miðjumanninn sem á eitt ár eftir af samningi sínum við Liverpool. Vefurinn Tuttosport heldur því fram að Can hafi þegar náð samkomulagi við Juventus um félagaskiptin en Jürgen Klopp, stjóri Liverpool, hefur ekki áhuga á því að missa Can og vonast til að halda Þjóðverjanum í sínum röðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert