Von á risatilboði í Coutinho

Philippe Coutinho.
Philippe Coutinho. AFP

Forráðamenn Barcelona undirbúa nú sitt annað tilboð í Brasilíumanninn Philippe Coutinho hjá Liverpool en ensku götublöðin segja frá því í dag að tilboð upp á 80 milljónir punda sé á leiðinni til Liverpool.

Síðast í fyrradag sagði Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, að Coutinho væri ekki til sölu og að hann hefði aldrei verið það, en það virðist ekki vera hlustað á Þjóðverjann í Barcelona.

Þótt það hafi hvergi verið staðfest á Liverpool þegar að hafa hafnað einu tilboði í kappann frá Barcelona, sem hljóðaði upp á 72 milljónir punda.

Nú segja götublöðin að tilboð upp á 80 milljónir punda sé á leiðinni og líkurnar hafi aðeins aukist eftir að þær fréttir bárust úr herbúðum Katalóníurisans að Brasilíumaðurinn Neymar sé mögulega á leið til Paris Saint Germain.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert