Kolarov farinn til Rómar

Aleksandar Kolarov.
Aleksandar Kolarov. AFP

Serbneski knattspyrnumaðurinn Aleksandar Kolarov er farinn frá Manchester City eftir sjö ára dvöl og er genginn til liðs við Roma á Ítalíu.

Manchester City staðfesti brottför hans fyrir stundu en Kolarov varð tvisvar enskur meistari, tvisvar deildabikarmeistari og einu sinni bikarmeistari með félaginu. Hann er 31 árs gamall og hefur leikið 68 landsleiki fyrir Serbíu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert