Chelsea skellti Arsenal í Hreiðrinu

Michy Batshuayi skorar annað marka sinna í leiknum í dag.
Michy Batshuayi skorar annað marka sinna í leiknum í dag. AFP

Englandsmeistarar Chelsea lögðu bikarmeistara Arsenal á sannfærandi hátt, 3:0, þegar liðin mættust í æfingaleik í Peking, höfuðborg Kína, í dag.

Mörkin komu á níu mínútna kafla í kringum leikhléð en Willain og Michy Batshuayi skoruðu undir lok fyrri hálfleiks og Batshuayi bætti við marki í upphafi þess síðari. 

Leikið var í „Fuglshreiðrinu," Ólympíuleikvanginum í Peking.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert