Zouma genginn í raðir Stoke

Kurt Zouma í búningi Stoke.
Kurt Zouma í búningi Stoke. Ljósmynd/Twitter-síða Stoke

Miðvörðurinn Kurt Zouma mun leika með Stoke City í ensku úrvalsdeildinni á komandi leiktíð en hann hefur verið lánaður til félagsins út tímabilið fá Englandsmeisturum Chelsea.

Zouma, sem er 22 ára gamall, kom til Chelsea frá franska liðinu Saint-Etienne árið 2014. Hann kom við sögu í 13 leikjum með Chelsea á síðustu leiktíð eftir að hafa komið til baka eftir erfið hnémeiðsli sem hann varð fyrir í febrúar 2016.

Áður en Zouma fór til Stoke skrifaði hann undir nýjan sex ára samning við Englandsmeistarana.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert