Robertson kominn í Liverpool

Andrew Robertson
Andrew Robertson AFP

Skoski landsliðsmaðurinn Andrew Robertson er genginn í raðir Liverpool en hann skrifaði undir langtímasamning við félagið eftir að hafa gengist undir læknisskoðun.

Robertson er 24 ára gamall vinstri bakvörður sem kemur til Liverpool frá Hull City sem hann hefur leikið með frá árinu 2014. Hann hefur spilað 14 leiki með skoska landsliðinu og hefur í þeim skorað eitt mark.

Það voru fleiri viðskipti á milli félaganna í dag því Hull fékk miðjumanninn Kevin Stewart frá Liverpool. Hann kom til liðsins frá Tottenham árið 2014 og lék 20 leiki með aðalliðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert