Enska knattspyrnufélagið Reading hefur komist að samkomulagi um að borga 1,25 milljónir punda fyrir Modou Barrow, leikmann Swansea. Hinn 24 ára gamli Barrow á eftir að gangast undir læknisskoðun og samþykkja eigin kaup og kjör.
Barrow var á láni hjá Leeds síðari hluta síðustu leiktíðar en hann spilaði aðeins fjóra leiki fyrir liðið. Hann byrjaði vel í ensku deildinni á síðustu leiktíð en hann átti erfitt með að komast í liðið eftir að Paul Clement tók við.