Fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Frank Lampard hefur talað við forráðamenn enska C-deildarfélagsins Oxford United varðandi þjálfarastöðu liðsins. Samkvæmt Sky Sports er Lampard fyrsti kostur hjá félaginu.
Oxford er að leita að nýjum stjóra eftir að Michael Appleton hætti með liðið til að verða aðstoðarþjálfari Leicester.
Lampard hætti að spila fótbolta í febrúar síðastliðnum. Hann vann ensku úrvalsdeildina þrisvar, enska bikarinn fjórum sinnum og Meistaradeild Evrópu einu sinni. Hann lék auk þess 106 landsleiki fyrir England.