Stoltur Wenger situr stjórnarfund á þriðjudag

Arsene Wenger lyftir bikarnum í dag.
Arsene Wenger lyftir bikarnum í dag. AFP

Arsene Wenger, stjóri Arsenal, var afar sáttur við að lið hans tryggði sér sinn 13. bikarmeistaratitil og þann sjöunda undir stjórn Frakkans eftir 2:1 sigur á Chelsea á Wembley í dag.

„Við vorum frábærir frá fyrstu mínútu. Þetta lið hefur þjáðst, sameinast og svarað,“ sagði Wenger eftir sigurinn í dag.

„Ég er stoltur af því að hafa unnið sjö af þessum bikarmeistaratitlum. Ég er stoltur af því afreki,“ sagði Wenger.

Mikið hefur verið rætt og ritað um framtíð Frakkans eftir 20 ár í starfi knattspyrnustjóra hjá Arsenal. Það kemur allt í ljós í næstu viku segir Wenger.

„Það er stjórnarfundur á þriðjudag. Á miðvikudag  og fimmtudag verður þetta allt skýrara,“ sagði Wenger.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert