Silva til Manchester City á 43 milljónir

Bernardo Silva í leik með Monaco.
Bernardo Silva í leik með Monaco. AFP

Sky Sports greinir frá því í dag að knattspyrnumaðurinn Bernardo Silva sé á leið til Manchester City frá Monaco á 43 milljónir punda. Silva er 22 ára Portúgali sem leikur yfirleitt á miðjunni og hefur hann verið með betri leikmönnum Monaco, sem varð franskur meistari á leiktíðinni. 

Manchester United hafði áhuga á Silva fyrr á árinu, en Manchester City hefur nú unnið kapphlaupið um þennan portúgalska miðjumann. Silva ólst upp hjá Benfica og á hann tólf landsleiki fyrir portúgalska landsliðið. Silva gekk síðan til liðs við Monaco þar sem hann varð franskur meistari á síðustu leiktíð. Silva skoraði átta mörk í 36 leikjum fyrir Monaco á nýafstöðnu tímabili.

„Það er frábær tilfinning að ganga til liðs við eitt besta félagslið heims og ég hlakka mikið til þess að vinna að því ná markmiðum liðsins á næstu leiktíð. Guardiola er einn af bestu þjálfurum heims og jafnvel sá besti. Þegar Guardiola kallar þá segir þú ekki nei,“ sagði Silva í samtali við heimasíðu félagsins eftir að félagaskiptin voru kunngjörð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert