Silva líklega næsti stjóri Watford

Marco Silva tekur líklegast við Watford.
Marco Silva tekur líklegast við Watford. AFP

Enska knattspyrnufélagið Watford hefur hafið viðræður við Marco Silva og þykir líklegt að hann verði tilkynntur sem þjálfari liðsins á næstu dögum. Það er Sky Sports sem greinir frá þessu en Silva mistókst að halda Hull City í ensku úrvalsdeildinni á nýliðinni leiktíð og hætti hann í kjölfarið hjá félaginu. 

Þrátt fyrir það heillaði hann marga, þar sem Hull spilaði mun betur eftir að hann tók við af Mike Phelan um mitt tímabil. Fari svo að Silva taki við Watford verður hann eftirmaður Walter Mazzarri sem var sagt upp störfum hjá Watford fyrr í þessum mánuði. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert