Garry Monk hefur sagt starfi sínu lausu sem knattspyrnustjóri enska B-deildarliðsins Leeds United.
Í yfirlýsingu frá Leeds kemur þetta fram:
„Leeds United staðfestir að það hafi móttekið uppsögn Gary Monk sem knattspyrnustjóri aðalliðsins. Við erum í sjokki og erum vonsviknir með ákvörðun Garry en uppsögn hans hefur verið samþykkt af Andrea Radrizzani, stjórnarmanni félagsins.“
Leeds hafnaði í 7. sæti í B-deildinni á nýliðnu tímabili og var þetta besti árangur liðsins í 11 ár en liðið var fimm stigum frá því að komast í umspil um sæti í ensku úrvalsdeildinni. Monk tók við stjórastarfinu hjá Leeds í júní á síðasta ári.