Gerrard og Carracher í sigurliði Liverpool

Leikmenn Liverpool lúta höfði til minningar um fórnarlömbin í Manchester.
Leikmenn Liverpool lúta höfði til minningar um fórnarlömbin í Manchester. AFP

Liverpool vann í dag öruggan 3:0 sigur í æfingaleik gegn ástralska liðinu FC Sydney að viðstöddum 72 þúsund áhorfendum á ANZ Stadium í Ástralíu.

Daniel Sturridge, Alberto Moreno og Roberto Firmino skoruðu mörkin fyrir Liverpool í leiknum en fyrir hann var einnar mínútu þögn til að minnast fórnarlambanna sem létust í sjálfsmorðssprengingunni í Manchester í fyrrakvöld.

Goðsagnirnar Steven Gerrard og Jamie Carragher voru í byrjunarliði Liverpool og þá komu menn eins og Steve McManaman og Daniel Agger inn á í seinni hálfleik.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert