Enn aukast vandræðin hjá Wenger

Arsene Wenger.
Arsene Wenger. AFP

Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, er í vandræðum með lið sitt fyrir bikarúrslitaleikinn gegn Chelsea sem fram fer á Wembley á laugardaginn.

Wenger staðfesti við fréttamenn í morgun að brasilíski miðvörðurinn Gabriel sé úr leik næstu átta vikurnar en hann meiddist illa á hné í leiknum gegn Everton í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar.

Franski miðvörðurinn Laurent Koscielny tekur út leikbann á laugardaginn og þá ríkir óvissa um hvort þýski miðvörðurinn Shkodran Mustafi verði leikfær en hann er í kapphlaupi við tímann að ná sér góðum af meiðslum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert