Stórleikur í enska bikarnum

Chelsea og Tottenham mætast í dag.
Chelsea og Tottenham mætast í dag. AFP

Það er sannkallaður stórleikur í enska FA-bikarnum í knattspyrnu síðdegis í dag þegar Lundúnaliðin Chelsea og Tottenham mætast í undanúrslitum keppninnar á Wembley.

Liðin eru í fyrsta og öðru sæti ensku úrvalsdeildarinnar en þurfa nú að leggja þá baráttu til hliðar og slást um sæti í úrslitaleiknum í staðinn.

Tottenham hefur ekki riðið feitum hesti frá undanúrslitum FA-bikarsins í gegnum tíðina og tapað í sex síðustu skipti sem liðið hefur komist svo langt. Chelsea hefur aftur á móti unnið þessa keppni sex sinnum síðan Tottenham fagnaði síðast sigri árið 1991.

Leikurinn hefst klukkan 16.15 og verður í beinni textalýsingu hér á mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert