Kemst Gylfi úr fallsæti í dag?

Gylfi Þór Sigurðsson og Kyle Walker eigast við í leik …
Gylfi Þór Sigurðsson og Kyle Walker eigast við í leik Swansea og Tottenham á dögunum. AFP

Fjórir leikir eru á dagskrá ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag. Swansea, lið Gylfa Þórs Sigurðssonar, er þar meðal annars í eldlínunni en liðið berst fyrir lífi sínu í deildinni.

Swansea fær Stoke í heimsókn og er fyrir leikinn í fallsæti, tveimur stigum frá öruggu sæti. Sigur getur því komið Gylfa og félögum úr fallsæti, en liðið þarf einnig að treysta á að Hull vinni ekki Watford en þau mætast á sama tíma.

Everton getur jafnað Manchester United að stigum í fimmta sætinu með sigri á West Ham, en leiki dagsins má sjá hér að neðan og hefjast þeir allir klukkan 14.

Bournemouth – Middlesbrough
West Ham – Everton
Swansea – Stoke
Hull – Watford

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert