„OmarGod hvað hann er góður“

Ómar Ingi Magnússon lék gríðarlega vel í fyrri hálfleik.
Ómar Ingi Magnússon lék gríðarlega vel í fyrri hálfleik. Ljósmynd/Szilvia Micheller

Þegar þessi frétt er skrifuð er hálfleikur í leik Íslands og Frakklands á EM karla í handbolta. Íslenska liðið leik gríðarlega vel í hálfleiknum og er með 17:10 forystu.

Rasmus Boysen, handknattleiksmaður og eigandi vefsíðanna Handballtrasfers og Handball-world, er mikill aðdáandi Ómars Inga Magnússonar en Ómar lék gríðarlega vel í hálfleiknum og skoraði átta mörk.

Boysen kom með skemmtilegan orðaleik á Twitter til að fagna spilamennsku Ómars en hann skrifaði einfaldlega „OmarGod, how good Ingi Magnusson is.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert