Spánverjar áttu ekki í miklum vandræðum með að sigra Makedóníumenn í milliriðli Evrópumóts karla í handbolta í Króatíu í kvöld, 31:20. Spánverjar skoruðu sex af fyrstu sjö mörkum leiksins og var seinni hálfleikurinn formsatriði enda staðan 15:6 í hálfleik.
Eduardo Gurbindo skoraði sex mörk í jöfnu liði Spánverja og þeir Stojanche Stoilov og Dejan Manaskov gerðu fjögur mörk fyrir Makedóníu.
Spánverjar eru nú með fjögur stig í 2. sæti milliriðils 2 og Makedóníumenn í 4. sæti með þrjú stig. Spánverjar eiga leik til góða á Dani sem eru í toppsæti riðilsins með sex stig.