Noregur laut í lægra haldi fyrir Króatíu

Luka Cindric fagnar einu af fimm mörkum sínum í kvöld.
Luka Cindric fagnar einu af fimm mörkum sínum í kvöld. AFP

Norðmenn biðu lægri hlut fyrir Króötum, 32:28, í milliriðli 2 á Evrópumóti karla í handbolta í Zagreb, höfuðborg Króatíu, í kvöld. Króatar komust í 3:0 í byrjun og tókst Norðmönnum aldrei að jafna eftir það, þótt illa gengi hjá heimamönnum að hrista þá af sér.

Staðan var 20:19 snemma í seinni hálfleik en Króatía reyndist sterkari á lokakaflanum. Manuel Štrlek skoraði sex og Luka Cindrić fimm fyrir Króata. Sander Sagosen skoraði átta fyrir Norðmenn og Kristian Bjørnsen sex. 

Króatar eru í 2. sæti riðilsins með sex stig, eins og Frakkar. Norðmenn eru í 3. sæti með fjögur stig eins og Svíar sem eiga leik til góða. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert