Sænska kvennalandsliðið í knattspyrnu er á leiðinni á EM í Englandi og leikmenn liðsins geta fengið allt að 7,5 milljónum króna eftir frammistöðu.
Upphæðin fer eftir því hve langt sænska liðið kemst en liðið er í 2. sæti á heimslistanum á eftir Bandaríkjunum.Upphæðirnar eru eins og hér segir:
Riðlakeppni: um 3,4 milljónir ISK á haus ( 261 000 sænskar krónur/SEK)
Átta liða úrslit: um 5,4 milljónir ISK (417 000 SEK)
Undanúrslit: um 5,9 milljónir ISK (452 000 SEK)
Silfurverðlaun: um 6,7 milljón ISK (514 000 SEK)
Gullverðlaun: um 7,5 milljónir ISK (578 000 SEK)