Verður leikmaður Vals í þriðja sinn

Kristinn Freyr Sigurðsson er að skipta aftur yfir til Vals, …
Kristinn Freyr Sigurðsson er að skipta aftur yfir til Vals, frá FH. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Knattspyrnumaðurinn Kristinn Freyr Sigurðsson er á leiðinni til Vals í þriðja sinn á ferlinum og verður kynntur hjá félaginu á næstu dögum.

Þetta herma heimildir 433.is. Kristinn gengur í raðir Vals frá FH, þar sem hann var í eitt tímabil.

Heimir Guðjónsson, núverandi þjálfari FH, var þjálfari Vals þegar Kristinn skipti yfir til FH. Er þetta því í annað sinn á skömmum tíma sem Kristinn yfirgefur félag sem Heimir þjálfar.

Kristinn kom fyrst til Vals árið 2012 og svo aftur árið 2018, eftir tvö ár í atvinnumennsku. Verður hann því leikmaður Hlíðarendafélagsins í þriðja sinn.

Miðjumaðurinn hefur leikið 2018 leiki í efstu deild og skorað í þeim 42 mörk. Hann skoraði þrjú mörk í 24 leikjum með FH á síðustu leiktíð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert