Daði ver markið hjá Þór

Daði Freyr Arnarsson gómar boltann í leik með FH gegn …
Daði Freyr Arnarsson gómar boltann í leik með FH gegn Stjörnunni í úrvalsdeildinni. mbl.is/Kristinn Magnússon

Þórsarar á Akureyri hafa fengið vestfirska markvörðinn Daða Frey Arnarsson lánaðan frá FH út þetta keppnistímabil.

Daði er 22 ára gamall og hefur leikið 16 leiki í marki FH-inga í úrvalsdeildinni en hefur einnig verið í láni hjá Vestra. Hann kom upphaflega til FH-inga frá BÍ/Bolungarvík en Daði lék 15 leiki með yngri landsliðum Íslands.

Á heimasíðu Þórs kemur fram að Aron Birkir Stefánsson markvörður liðsins sé frá keppni vegna meiðsla og gæti verið lengi frá. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert