Selfoss fær liðsauka frá Bandaríkjunum

Caity Heap undirritar samninginn við Selfyssinga.
Caity Heap undirritar samninginn við Selfyssinga. Ljósmynd/UMF Selfoss

Knattspyrnudeild Selfoss hefur samið við bandaríska miðjumanninn Caity Heap um að leika með kvennaliði félagsins á komandi keppnistímabili.

Heap, sem er 26 ára gömul, er reynslumikill leikmaður. Hún var í sterku liði Texas Tech-háskólans en eftir útskrift samdi hún við Houston Dash í bandarísku atvinnumannadeildinni og lék þar tímabilin 2016-2017. Eftir það hélt hún til Evrópu og lék eitt tímabil með Mallbacken í sænsku B-deildinni áður en hún gekk til liðs við tékknesku meistarana í Sparta Prag.

„Caity er mjög spennandi leikmaður með mikla reynslu frá bæði Bandaríkjunum og Evrópu. Þetta er vel spilandi miðjumaður, sem er jafnvíg á hægri og vinstri fót. Hún á klárlega að geta bætt spilið hjá okkur til mikilla muna. Það er mikil tilhlökkun hjá okkur hérna á Selfossi að fá hana til okkar,“ segir Alfreð Elías Jóhannsson, þjálfari Selfoss, í tilkynningu frá félaginu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert