Frá Keflavík til Svíþjóðar?

Keflvíkingar unnu sér sæti í úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.
Keflvíkingar unnu sér sæti í úrvalsdeildinni á síðasta tímabili. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Knattspyrnumaðurinn Rúnar Þór Sigurgeirsson frá Keflavík er þessa dagana til reynslu hjá sænska úrvalsdeildarliðinu Sirius.

Rúnar, sem er 21 árs gamall vinstri bakvörður eða kantmaður, var í stóru hlutverki hjá Keflavík þegar liðið vann 1. deildina á síðasta tímabili og var í hópi 21-árs landsliðsins í haust. Hann spilaði fjóra leiki með Keflvíkingum þegar þeir voru síðast í úrvalsdeildinni árið 2018.

„Hann er hér til að sýna sig fyrir okkur og við að sýna honum okkur,“ segir Adrian von Heijne, yfirmaður þróunarmála hjá Sirius, á heimasíðu félagsins.

Rúnar mun æfa með Sirius í tíu daga og spila æfingaleik með liðinu gegn Gefle.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert