Elísabet vildi ekki ganga að skilmálum KSÍ

Elísabet Gunnarsdóttir þjálfari Kristianstad.
Elísabet Gunnarsdóttir þjálfari Kristianstad. Ljósmynd/@_OBOSDamallsv

Elísabet Gunnarsdóttir þjálfari Kristianstad í Svíþjóð verður ekki næsti landsliðsþjálfari kvenna í knattspyrnu en hún segir að eftir að allt hafi stefnt í að hún tæki við landsliðinu hafi KSÍ sett sér skilmála hinn 20. janúar sem hún hafi ekki getað gengið að.

Þetta segir Elísabet í viðtali við Magnús Má Einarsson á Fótbolti.net í dag en þar kemur fram í máli hennar að það hefði verið rætt í tvær vikur í janúar að hún myndi halda áfram að þjálfa Kristianstad út þetta ár, ásamt því að þjálfa landsliðið, og tæki síðan landsliðið alfarið að sér í árslok 2021.

„Ég ætla að vera alveg hreinskilin, ég hélt að við værum að finna lausn á þessu. Þetta er kórónuár og það eru færri verkefni á venjulegu ári. Ég var mjög skýr, ég hef ótrúlega mikinn áhuga á þessu starfi og vildi finna lausn á þessu,“ sagði Elísabet við Fótbolta.net í dag.

„Þau höfðu samband í janúar og þá var ég búin að skrifa undir samning hér. Ég túlkaði þetta eins og það væri vilji til að finna lausn á þessu. Á fimmtudaginn voru þau komin í hring með það að það gengi ekki að gera þetta saman í ár og ég yrði að hætta hérna innan þriggja mánaða. Að koma með það sem skilmála 20. janúar er of seint. Ég er ekki þannig, hvorki sem manneskja né þjálfari, að labba frá liðinu þegar ég er búin að standa fyrir framan það og ræða markmið og strategíu fyrir árið. Ég get bara ekki gert það. Þar af leiðandi var það nei af beggja hálfu,“ segir Elísabet ennfremur í viðtalinu og bætir við:

„Ég er drullusvekkt með þetta. Svona er þetta. Ég ber virðingu fyrir því að þau vilji ekki vera með þjálfara í tvöföldu starfi. Ég hlýt að hafa mistúlkað þetta brjálæðislega því mér fannst okkar viðræður vera þannig að við værum að finna lausn á þessu. Ég held að sá vilji hafi ekki endilega verið til staðar. Maður verður að bera virðingu fyrir því og vona að þeir ráði góðan mann í starfið. Þetta er rosalega spennandi lið að þjálfa.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert