Á leið til Stjörnunnar

Heiða Ragney Viðarsdóttir í leik gegn Þrótti í Reykjavík síðasta …
Heiða Ragney Viðarsdóttir í leik gegn Þrótti í Reykjavík síðasta sumar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Knattspyrnukonan Heiða Ragney Viðarsdóttir er að ganga til liðs við Stjörnuna.

Það er fótbolti.net sem greinir frá þessu en Heiða Ragney er 25 ára gömul miðjukona sem er uppalin hjá Þór/KA á Akureyri.

Hún á að baki 77 leiki í efstu deild fyrir félagið og þá á hún að baki fimm landsleiki fyrir yngri landslið Íslands.

Heiða Ragney lék alla sextán leiki Þórs/KA í úrvalsdeildinni, Pepsi Max-deildinni, á síðustu leiktíð og skoraði í þeim eitt mark þegar liðið hafnaði í sjöunda sæti deildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert