KSÍ kynnir nýja landsliðsmerkið og búninginn

Nýju landsliðsbúningarnir með nýja merkinu.
Nýju landsliðsbúningarnir með nýja merkinu. Ljósmynd/KSÍ

Knattspyrnusamband Íslands kynnti í dag nýja landsliðsbúninga frá Puma en frá og með deginum í dag er kominn í gildi nýr sex ára samningur við fyrirtækið um alla búninga fyrir landslið Íslands.

Um leið kynnti KSÍ nýtt landsliðsmerki sem notað verður á landsliðsbúningunum og í kringum íslensku landsliðin, en það er mjög frábrugðið nýju merki KSÍ sem kynnt var fyrr á árinu og er ætlað fyrir hefðbundna notkun hjá sambandinu. Merkið er hannað af auglýsingastofunni Brandenburg og eru landvættir Íslands burðarásar merkisins.

Nýja landsliðsmerkið hjá KSÍ
Nýja landsliðsmerkið hjá KSÍ Ljósmynd/KSÍ

Meðal annars býður nýja merkið upp á að því sé skipt í fjóra hluta, landvættina fjóra, og þeir gætu m.a. verið hver á sínum hornfánanum á heimaleikjum Íslands á Laugardalsvellinum. 

Kynningu á merkinu má sjá hér fyrir neðan:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert