Kolbeinn Sigþórsson er markahæsti leikmaður íslenska landsliðsins í undankeppni EM en Kolbeinn jafnaði markamet Eiðs Smára Guðjohnsen þegar hann innsiglaði sigurinn gegn Andorra á Laugardalsvellinum í gærkvöld.
Kolbeinn skoraði þar með sitt 26. landsliðsmark en hann hefur skorað þrjú mörk í undankeppninni sem komu á móti Moldóvu, Albaníu og Andorra.
Ísland hefur skorað tólf mörk í undankeppninni og mörkin dreifst á eftirtalda leikmenn:
3 - Kolbeinn Sigþórsson
2 - Birkir Bjarnason
2 - Ragnar Sigurðsson
1 - Viðar Örn Kjartansson
1 - Jón Daði Böðvarsson
1 - Jóhann Berg Guðmundsson
1 - Gylfi Þór Sigurðsson
1 - Arnór Sigurðsson