Portúgalskur framherji til Fram

Portúgalarnir tveir, Tiago Fernandes og Pedro Hipolito.
Portúgalarnir tveir, Tiago Fernandes og Pedro Hipolito. Fram.is

Tiago Fernandes, 22 ára sóknarmaður frá Portúgal, hefur skrifað undir tveggja ára samning við knattspyrnudeild Fram, en liðið leikur í 1. deildinni.

Fernandes hefur undanfarin misseri leikið í portúgölsku 3. deildinni við ágætan orðstír en hann lék 82 leiki, skoraði fjögur mörk og skilaði heilum 35 stoðsendingum.

Þjálfari Fram, Pedro Hipolito, er auðvitað portúgalskur og hafa Framarar stofnað til fjölbreyttra tengsla þar í landi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert