Björgvin líklegast á leið í KR

Björgvin Stefánsson í leik með Haukum í sumar.
Björgvin Stefánsson í leik með Haukum í sumar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Knattspyrnumaðurinn Björgvin Stefánsson mun væntanlega skrifa undir samning við KR á næstu dögum. Þetta kemur fram á 433.is í dag. 

Björgvin, sem er uppalinn hjá Haukum, lék með liðinu í Inkasso-deildinni í sumar og skoraði 14 mörk í 19 leikjum. Hann hefur leikið með Þrótti og Val í efstu deild og skorað tvö mörk í 16 leikjum. 

Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, er hrifinn af Björgvini og fékk hann m.a til sín á reynslu til Lillestrøm í Noregi á síðasta ári. „Hann stóð sig mjög vel þegar hann kom til Lillestrøm og er mjög spennandi leikmaður,“ sagði Rúnar í samtali við 433. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert