Tekst Hipólító að fá sitt fyrsta stig?

Framarinn Guðmundur Magnússon fær gula spjaldið hjá Sigurði Óla Þórleifssyni.
Framarinn Guðmundur Magnússon fær gula spjaldið hjá Sigurði Óla Þórleifssyni. mbl.is/Árni Sæberg

Fyrsti leikurinn í 14. umferð Inkasso-deildarinnar í knattspyrnu fer fram á Laugardalsvellinum í kvöld þegar Fram fær Leikni Reykjavík í heimsókn.

Það hefur hvorki gengið né rekið hjá Frömurum frá því Portúgalinn Pedro Hipólító tók við þjálfun Fram-liðsins eftir að Ásmundi Arnarssyni var sagt upp störfum.

Framarar hafa tapað öllum fjórum leikjum sínum undir stjórn Portúgalans og eru þeir í 9. sæti deildarinnar með 15 stig en Leiknismenn eru sætinu fyrir ofan með 17 stig.

Flautað verður til leiks í Laugardalnum klukkan 19.15 og verður fylgst með gangi mála í beinni textalýsingu hér á mbl.is.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert