Leik KA og FH í Pepsi-deild karla sem fram átti að fara á sunnudaginn kemur hefur verið frestað um tæpa viku og hann verður í staðinn spilaður um verslunarmannahelgina.
FH-ingar eiga þétt leikjaprógramm fyrir höndum þar sem þeir eru bæði komnir áfram í Meistaradeild Evrópu og í undanúrslit bikarkeppninnar.
Þeir mæta Maribor í Slóveníu á miðvikudaginn og taka á móti Leikni R. í bikarkeppninni á laugardaginn kemur. Síðan er komið að heimaleiknum gegn Maribor á miðvikudaginn í næstu viku.
Viðureign KA og FH fer því fram laugardaginn 5. ágúst klukkan 16.00 á Akureyrarvelli.